Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis Matorku til fiskeldis við Grindavík

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Matorku ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Húsatóftum i5, vestan Grindavíkur. Stofnunin auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 21. ágúst 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 16. september 2020.

Matorka sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 6.000 tonna hámarkslífmassa matfiskeldi á lax, bleikju og regnbogasilung að Húsatóftum, svæði i5, vestan Grindavíkur. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 8. mars 2019. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Matorku FE-1153 að Húsatóftum, svæði i5, í Grindavík en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?