Tillaga að rekstrarleyfi Thor landeldi ehf. til fiskeldis Þorlákshöfn
Frétt -
02.12.2024
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Thor landeldi ehf. vegna fiskeldis á landi vestan við Þorlákshöfn. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 13.150 tonna hámarkslífmassa vegna seiða- og matfiskeldis á lax, bleikju og regnbogasilungi.
Framkvæmdin fór í gegn um mat á umhverfisáhrifum í samræm við lög 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is merkt 2312446. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3.janúar 2025.
Ítarefni