Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Arnarlax hf. til fiskeldis á Gileyri í Tálknafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Arnarlax hf.  vegna seiðaeldis á Gileyri í Tálknafirði. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga þar sem hámarkslífmassi miðast við 200 tonn af laxi og bleikju.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 7. júlí 2021.

 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?