Tillaga að endurnýjun rekstrarleyfis Tungusilungs í Tálknafirði
Frétt -
22.03.2024
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi Tungusilungs ehf. vegna fiskeldis á landi við Tálknafjörð. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga þar sem hámarkslífmassi miðast við 200 tonn af bleikju og regnbogasilungi.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. apríl 2024.
Ítarefni