Tillaga að breytingu rekstrarleyfis Landeldi hf. að Öxnalæk í Ölfusi
Frétt -
10.11.2022
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að breytingu á rekstrarleyfi Landeldi hf. vegna fiskeldis á landi við Öxnalæk í Ölfusi. Um er að ræða breytingu þar sem bleikju er bætt við sem eldistegund, hámarkslífmassi miðast við 100 tonn.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8. desember 2022.
Ítarefni