Fara í efni

Sérfræðingur í gæðastjórnun

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling á áhættumats- og gæðastjórnunarsvið til að ritstýra gæðahandbók og hafa umsjón með gæðaforritum stofnunarinnar. Um er að ræða fullt starf í á aðalskrifstofu MAST á Selfossi frá og með 1. janúar 2012.


Helstu verkefni:


  • Ritstjórn gæðahandbókar
  • Verkstjórn innri úttekta á gæðakerfinu og umsjón umbótaverkefna
  • Eftirfylgni ábendinga og kvartana
  • Úttekt á opinberu eftirliti
  • Önnur tilfallandi verkefni sem starfsmanni eru falin


Menntunar- og hæfniskröfur:


  • Háskólamenntun eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnu við gæðakerfi byggt á ISO 9001 er skilyrði
  • Þekking og reynsla af Focal–gæðaforritum og umsjón þeirra er skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi


Nánari upplýsingar um störfin veita Sigurborg Daðadóttir og  Hafsteinn Jóh. Hannesson í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Sérfræðingur-gæðastjórnun” eða með tölvupósti á mast@mast.is.  Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2011 og verður öllum umsóknum svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.



Getum við bætt efni síðunnar?