Fara í efni

Sérfræðingur á matvælasviði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling á matvælaöryggis- og neytendamálasvið frá og með 1. september 2011. Um er að ræða fullt starf á aðalskrifstofu MAST á Selfossi.


Helstu verkefni:
  • Umsjón með málaflokkunum merkingar matvæla, aukefni og bragðefni.
  • Samskipti við neytendur, matvælafyrirtæki og eftirlitsaðila
  • Vinna við matvælalöggjöf
  • Samskipti við erlendar stofnanir
  • Önnur tilfallandi verkefni sem starfsmanni eru falin
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskólapróf í matvælafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af eftirliti og opinberri stjórnsýslu
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Góð tölvu- og tungumálakunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Örn Hansson og Hafsteinn Jóh. Hannesson og í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum “Sérfræðingur” eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2011. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Öllum umsóknum verður svarað.



Getum við bætt efni síðunnar?