Fara í efni

Samstarfsráð MAST

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað samstarfsráð Matvælastofnunar. Innan samstarfsráðsins mun Matvælastofnun hafa reglubundna samvinnu og samráð við þá aðila, félög, samtök og stofnanir sem tengjast starfsemi hennar. 

Stofnunin mun kynna árlegar áætlanir um störf stofnunarinnar, skýrslur um starfsemina og önnur mikilvæg málefni sem tengjast starfi stofnunarinnar. Fulltrúum samstarfsráðs er einnig heimilt að óska eftir umfjöllun um tiltekin málefni á fundum ráðsins. 

Samstarfsráðið er vettvangur til samráðs og skipta á upplýsingum sem ætlað er að auka gagnkvæman skilning og gagnsæi stjórnsýslunnar.

Samkvæmt reglugerð um samstarfsráðið skipar ráðherra ráðið samkvæmt tilnefningu 16 aðila:

  • Guðrún Vaka Steingrímsdóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands
  • Sif Traustadóttir, tilnefnd af Dýraverndarsambandi Íslands
  • Tómas Jónsson, tilnefndur af Dýralæknafélags Íslands
  • Guðrún Sigmundsdóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis
  • Guðný Hjaltadóttir, tilnefnd af Félagi atvinnurekenda
  • Þórhallur Ingi Halldórsson, tilnefndur af Háskóla Íslands
  • Ragnhildur Helga Jónsdóttir, tilnefnd af Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Elías Blöndal Guðjónsson, tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga
  • Oddur Már Gunnarsson, tilnefndur af Matís
  • Gunnar Alexander Ólafsson, tilnefndur af Neytendasamtökunum
  • Arndís Ósk Ólafsdóttir, tilnefnd af Samorku
  • Heiðrún Björk Gísladóttur, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
  • Heiðmar Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
  • Gunnar Sigurðarson, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins
  • Gréta María Grétarsdóttir, tilnefnd af Samtökum verslunar og þjónustu
  • Guðný Rut Pálsdóttir, tilnefnd af Tilraunastöð HÍ, Keldum

Getum við bætt efni síðunnar?