Fara í efni

Riða í Skagafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Riðuveiki hefur verið staðfest á búi á Skagafirði. Þetta er fjórða tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á Norðurlandi vestra síðan í febrúar 2015. Þá hafði ekki greinst riða á landinu síðan árið 2010. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.

Í síðustu viku fékk bóndinn í Brautarholti í Skagafirði grun um riðuveiki í kind og hafði samband við héraðsdýralækni. Kindinni var lógað og sýni sent til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum, sem staðfesti á miðvikudag í þessari viku að um hefðbundna riðuveiki væri að ræða. Búið er í Skagahólfi en þar hefur riðuveiki komið upp á ellefu búum á undanförnum 20 árum og þar af á fjórum búum í nágrenni Varmahlíðar, þannig að segja má að um þekkt riðusvæði sé að ræða. Á þessu búi var síðast skorið niður vegna riðu árið 1987. Á bænum er nú um 290 fullorðið fé.

Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014. Riðuveikin er því á undanhaldi en ekki má sofna á verðinum. Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjúþúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna. 

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.

Ítarefni

Frétt uppfærð 23.09


Getum við bætt efni síðunnar?