Fara í efni

Riða á Norðvesturlandi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Riðuveiki greindist nýverið á bæ á Norðvesturlandi. Þetta er fyrsta tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á landinu frá árinu 2010. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.

Riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum Neðra-Vatnshorni í Húnaþingi-vestra, þar sem fjöldi fjár er hátt í fimm hundruð. Sýnin voru tekin samkvæmt skimunaráætlun Matvælastofnunar við slátrun síðastliðið haust. Ekki hafði orðið vart neinna sjúkdómseinkenna. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Mikill fjöldi sýna er tekinn við haustslátrun og er því enn unnið að rannsókn á þeim. 

Um er að ræða hefðbundna gerð riðusmitefnisins, sem ekki hefur greinst hér á landi síðan árið 2010 og þá í Árneshólfi. Bærinn sem nú um ræðir er í Vatnsneshólfi. Í því varnarhólfi greindist riðuveiki síðast árið 2000. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011, 2012 og 2013. Riðuveikin er því á undanhaldi en þetta tilfelli sýnir að ekki má sofna á verðinum. Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjú til fjögurþúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna.  

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?