Reglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli
Matvælastofnun vill vekja athygli á drögum að nýrri reglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli. Þessi drög eru nú til kynningar á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis (ANR).
Markmiðið með nýrri reglugerð er að auðvelda sláturhúsum, fiskmörkuðum og litlum matvælafyrirtækjum að uppfylla kröfur í hollustuhátta- og eftirlitsreglugerðum.
Þetta er gert með því að slá af ítrustu kröfum þannig að hægt sé að nota áfram hefðbundnar aðferðir á öllum stigum framleiðslu, vinnslu eða dreifingar matvæla. Enn fremur á reglugerðin að leiðbeina litlum matvælafyrirtækjum varðandi byggingar, skipulag og búnað ákveðinna starfsstöðva.
Hér fyrir neðan er krækja á frétt ANR. Veittur er frestur til 16. júní nk. til að koma athugasemdum varðandi drögin á framfæri við ráðuneytið.