Fara í efni

Þörungaeitur mælist í kræklingi úr Eyjafirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

PSP (lömunareitur) og  DSP (niðurgangseitur) hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeitursgreiningar reyndist magn PSP og DSP vera yfir viðmiðunarmörkum.  Matvælastofnun varar því við sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði.


   Þörungaeitursgreining sem framkvæmd var þann 11.9.2011 sýndi að magn PSP er yfir viðmiðunarmörkum eða 1545µg/kg en mörkin eru 800µg/kg. Alexandrium eiturþörungar sem orsaka PSP eitrun í skelfiski hafa verið viðvarandi í Eyjafirði frá því í maí í vor með tilheyrandi uppsöfnun af PSP eitri í skel af svæðinu. Þrátt fyrir að Alexandrium eiturþörungar sem valda PSP eitrun hafi ekki greinst í Eyjafirði í síðustu viku er PSP eitur ennþá yfir viðmiðunarmörkum. Á sama tíma hefur Dinophysis þörungum sem valda DSP eitrun fjölgað og DSP eitur greinst í krækling yfir viðmiðunarmörkum.

Á heimasíðu stofnunarinnar má sjá allar niðurstöður mælinga á eiturþörungum og þörungaeitri
. Þar má sjá hvaða veiði- og ræktunarsvæði eru opin  til uppskeru og  hver lokuð vegna þörungaeitrunar. Á sama tíma og mikð magn af eitruðum þörungum hefur greinst í  Eyjafirði  hafa þeir varla sést í Breiðafirði og því hafa ræktunarsvæðin þar  verið opin til uppskeru í allt sumar. Á heimasíðunni MAST má jafnframt finna upplýsingar um helstu gerðir þörungaeiturs og áhrif þeirra.

Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?