Ómerkt sinnep í hrásalati
Frétt -
15.02.2019
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi fyrir sinnepi við neyslu á tiltekinni lotu af hrásalati Þykkvabæjar. Hrásalatið inniheldur ofnæmis- og óþolsvaldinn sinnep án þess að það komi fram í innihaldslýsingu. Fyrirtækið hefur ákveðið að innkalla vöruna úr verslunum og frá neytendum.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Þykkvabæjar
- Vöruheiti: Hrásalat
- Strikanúmer: 5690599003473
- Nettómagn: 400g
- Best fyrir dagsetningar: 14.02.2019-07.03.2019
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifing. Verslanir um allt land
Neytendur sem eru með ofnæmi fyrir sinnepi eru beðnir um að farga vörunni, skila henni í þeirri verslun sem hún var keypt í eða skila henni til Þykkvabæjar ehf, Austurhrauni 5, 210 Garðabæ. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 564-1155 eða á netfanginu thykkvabaejar@thykkvabaejar.is.
Hrásalatið er skaðlaust þeim sem eru ekki með ofnæmi fyrir sinnepi.