Ólöglegt aukefni í sælgæti
Frétt -
15.11.2023
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á ABC jelly straws sem Lagsmaður efh. flytur inn vegna ólöglegra aukefna E410 og E407 sem eru hleypiefni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Stórir sælgætisbitar úr seigu hlaupi geta valdið köfnun.
Innköllunin á við allar best fyrir dagsetningar:
- Vörumerki: ABC
- Vöruheiti: Jelly straws 260g
- Best fyrir: Allar dagsetningar
- Nettómagn: 260g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Tsang Lin Industries Corp
- Framleiðsluland: Taiwan
- Innflytjandi/dreifingaraðili: Lagsmaður ehf/Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila til verslunar.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Lagsmanni ehf.
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirlitinu HEF
- Innkallanir á heimasíðu Matvælastofnunar
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook
- Aukefni á heimasíðu Matvælastofnunar