Nýtt riðutilfelli í Hrunamannahreppi
Frétt -
15.11.2007
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Greinst hefur riða á bænum Skollagróf í Hrunamannahreppi. Um er að ræða afbrigðið Nor98 en það hefur aðeins greinst einu sinni áður hér á landi. Hjörðinni verður fargað. Faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað og á grundvelli þeirra verður tekin ákvörðun um hvort ástæða sé til víðtækari aðgerða.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir í síma 5304800.