Fara í efni

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark mjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur skv. reglugerð nr. 190/2011 þann 1. nóvember 2011 hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði  krónur 290 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. 

  • Alls bárust Matvælastofnun 44 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 
  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 9. 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 34
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 901.799 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 1.031.748 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 657.999 lítrar.

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2011. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 290 kr/l.  

Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur  línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði  né jafnvægismagni.


Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 290 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur. 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  290,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. apríl 2011 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 221 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 64 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markað.
  • að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 5. kr/líter.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?