Neysluvatn á höfuðborgarsvæðinu er öruggt
Mengun í neysluvatni á höfuðborgarsvæðinu er einangrað fyrirbæri í kjölfar mikilla vatnavaxta sem leiddi til að gæði neysluvatns hefur nú í nokkra daga ekki staðist ýtrustu gæðakröfur. Niðurstöður mælinga á vatninu gefa ekki tilefni til að ætla að hætta sé á heilsufarslegum afleiðingum við neyslu á vatni á svæðinu. Þetta er niðurstaða fundar stjórnskipaðrar samstarfsnefndar um sóttvarnir í morgun.
Samstarfsnefndin telur ekki þörf á að almenningur á svæðum þar sem mengunin hefur mælst sjóði vatn fyrir neyslu og ekki sé þörf á sérstökum varúðarráðstöfunum. Einnig er óhætt að nota neysluvatnið í matvæla- og drykkjarframleiðslu.
Fundinn sátu fulltrúar sóttvarnalæknis, Matvælastofnunar, heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Kjósarsvæðis, Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, sýkingavarna- og sýklafræðideildar Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, MATÍS, Veitna OHF og Geislavarna ríkisins.
Á fundinum var rætt um þá mengun sem mælst hefur í neysluvatni í Reykjavík að undanskildum Grafarvogi, Norðingaholti, Úlfarsárdal og Kjalarnesi. Mengun mældist einnig á Seltjarnarnesi en engin mengun hefur mælst í neysluvatni í Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.
Veitur ohf. og heilbrigðiseftirlitssvæðin á höfuðborgarsvæðinu munu áfram fylgjast með gæðum neysluvatns og munu birta niðurstöður mælinga á sínum vefsíðum. Samstarfsnefndin mun áfram fylgjast náið með ofangreindri mengun og mun birta leiðbeiningar til almennings þegar tilefni gefst til.