Fara í efni

Mygla í pasta

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur við tveimur tegundum af La Pasta di Alessandra pasta:  Tortellini con ripieno di carne og Tortellini con ripieno di formaggio, vegna myglu. Fyrirtækið Aðföng, sem flytur inn pastað, hefur stöðvað sölu og innkallað vörurnar.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: La Pasta di Alessandra
  • Vöruheiti: Tortellini con ripieno di carne
  • Best fyrir dagsetning: 16-10-2021
  • Strikamerki: 8001195333005
  • Nettómagn: 1000 g
  • Framleiðandi: Nuovo Pastificio Italiano S.r.l.
  • Framleiðsluland: Ítalía
  • Vörumerki: La Pasta di Alessandra
  • Vöruheiti: Tortellini con ripieno di formaggio
  • Best fyrir dagsetning: 16-10-2021
  • Strikamerki: 8001195333029
  • Nettómagn: 1000 g
  • Framleiðandi: Nuovo Pastificio Italiano S.r.l.
  • Framleiðsluland: Ítalía
  • Dreifing: Í verslunum Bónusar

Innkallað pasta

Viðskiptavinum sem keypt hafa vörurnar er ráðlagt að neyta þeirra ekki og farga en einnig er hægt að skila þeim í verslunina þar sem þær voru keyptar gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori hjá adfong.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?