Magakveisa í Háaleitisskóla - Hvassaleiti og Hörðuvallaskóla
Á síðustu tveimur vikum hefur komið upp faraldur magakveisu meðal starfsmanna Háaleitisskóla - Hvassaleiti í Reykjavík og Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Stór hluti starfsmanna í þessum tveimur skólum hefur veikst með magaóþægindum og niðurgangi sem varir í nokkra daga. Ekki hefur borið á ofangreindum veikindum meðal starfsmanna annarra skóla á höfuðborgarsvæðinu og þeir starfsmenn sem hafa veikst virðast ekki hafa smitað aðra í neinum mæli.
Rannsóknir á veikum einstaklingum hafa enn sem komið er ekki leitt í ljós sýkingarvald veikindanna og ekki er ljóst á þessari stundu hvernig einstaklingarnir smituðust en líklegt er að um matarsýkingu sé að ræða.
Á samráðsfundi sóttvarnalæknis með stjórnendum skólanna, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, umdæmis- og svæðislæknum sóttvarna á höfuðborgarsvæðinu og Matvælastofnun var ákveðið að senda fleiri sýni í rannsóknir frá veikum einstaklingum og matvælum en þegar hefur verið gert. Veikum starfsmönnum verður ráðlagt að halda sig heima meðan niðurgangurinn gengur yfir og að auki í einn dag til viðbótar. Hvatt er til almenns hreinlætis og handþvottar og að farið sé eftir leiðbeiningum um meðferð matvæla. Ekki er talin hætta á að magakveisan breiðist út til nemenda og því ekki ástæða til að stöðva starfsemi skólanna á grunni sýkingarhættu.
Áfram verður fylgst náið með framgangi veikinda í þessum tveimur skólum og hvort faraldrar komi upp í öðrum skólum.
Ítarefni
- Varnir gegn matarsýkingum og matareitrunum
- Rannsóknir á matarbornum sjúkdómum
- Almennar leiðbeiningar um sýkingavarnir
- Nokkur heilræði um meðferð grænmetis sem nota á í ferskt salat
Sóttvarnalæknir og Matvælastofnun