Fara í efni

Leyfi til útflutnings á fiskmjöli og hrálýsi til Kína

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur síðustu 3-4 ár ásamt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu unnið að gerð samnings um heilbrigðiskröfur og eftirlit með útflutningi fiskmjöls og hrálýsis frá Íslandi til Kína. Í maí síðastliðnum undirritaði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, samninginn fyrir Íslands hönd. Í honum koma fram sérkröfur og skilyrði sem uppfylla þarf varðandi útflutning á fiskmjöli og hrálýsi til Kína.

Mikilvægustu kröfur Kínverja varða örugga hitun hráefnisins og varnir gegn mengun afurðanna eftir hitameðhöndlun.

Nú hafa 6 fiskmjölsverksmiðjur verið skráðar á lista yfir fyrirtæki sem hafa heimild til útflutnings á fiskmjöli og hrálýsi frá Íslandi til Kína, enda uppfylli þær skilyrði í samningi varðandi þennan útflutning.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?