Fara í efni

Leyfi til laxeldis í Patreksfirði og Tálknafirði felld úr gildi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur í tveimur úrskurðum sem féllu þann 27. september 2018 fellt úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um veita Fjarðarlax ehf. og Arctic Sea Farm rekstrarleyfi fyrir 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði.

Niðurstaða nefndarinnar byggir á að umhverfismatsskýrsla fyrirtækjanna og álit Skipulagsstofnunar á skýrslunni geti ekki verið lögmætur grundvöllur fyrir ákvörðun um veitingu leyfa til framkvæmda. Taldi nefndin að Matvælastofnun hefði borið að tryggja að málið væri nægilega upplýst, m.a. með því að gæta að því að lögbundið álit Skipulagsstofnunar hafi verið nægilega traustur grundvöllur fyrir leyfisveitingu.

Nefndin taldi að svo hafi ekki verið þar sem tefla hefði þurft fram fleiri en einum valkosti við mat á umhverfisáhrifum, enda sé nauðsynlegt að fá fram samanburð umhverfisáhrifa fleiri kosta sem lögbundin krafa er gerð um, allt í þeim tilgangi að leyfisveitandi geti tekið upplýsta afstöðu að rannsökuðu máli til þess að meta hvort eða með hvaða hætti hægt sé að leyfa framkvæmd þannig að skilyrði laga séu uppfyllt. Þar sem ekki hafi verið sýnt fram á í mati á umhverfisáhrifum að enginn annar mögulegur framkvæmdakostur hafi getað komið til greina verði að telja það verulegan ágalla á matinu að engum öðrum kosti hafi verið lýst, að öðru leyti en því að vísað væri til þess að núllkostur hefði engin áhrif í för með sér.

Matvælastofnun mun í framhaldinu fara yfir forsendur úrskurðarins og hvernig bregðist beri við þessari niðurstöðu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?