Fara í efni

Kynningarfundir fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf þriðjudaginn 9. febrúar kl. 14:30-16:30  í húsi Samtaka atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Fundurinn verður svo endurtekinn 16. febrúar á sama stað og tíma.

Ný matvælalöggjöf tekur gildi 1. mars. n.k. Sérkröfur til búfjárafurða taka gildi 1. nóvember 2011. Kynningin er ætluð stjórnendum matvælafyrirtækja en skv. skilgreiningu í löggjöfinni (Lög nr. 143/2009) er matvælafyrirtæki fyrirtæki eða einstaklingur sem rekur starfsemi í tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi, hvort sem það starfar í ágóðaskyni eða ekki, og hvort sem það er einkarekið eða opinbert fyrirtæki.

Dagskrá:

  • Af hverju ný matvælalöggjöf?  
  • Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?
  • Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?

Fulltrúar frá Matvælastofnun annast kynningu og verður boðið upp á umræðu að henni lokinni. Fundurinn er skipulagður í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og mun Ragnheiður Héðinsdóttir frá Samtökum iðnaðarins stýra fundinum.

Samskonar kynningarfundur fyrir matvælifyrirtæki verður haldinn á Akureyri þann 22. febrúar kl.14:30 – 16.30 og mun sá fundur vera auglýstur síðar.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 591 0100 eða með tölvupósti á netfangið mottaka@si.is. Taka skal fram á hvaða fund þið hyggist koma.


Matvælaframleiðendur eru hvattir til að kynna sér matvælalöggjöfina á vef MAST.  

Ítarefni



Getum við bætt efni síðunnar?