Fara í efni

Kadmíum yfir mörkum í Round Scad (Galunggong)

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á Round Scad (Galunggong) vegna þess að kadmíum mældist yfir leyfilegum hámarksgildum.  Filipino Store ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum fisk, Round Scad (Galunggong) frá Kapamilya

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Kapamilya
  • Vöruheiti: Round Scad (Galunggong)
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 23.06.2024
  • Nettómagn: 200-250 g
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Framleiðsluland: Indónesía
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:  Filipino Store ehf., Langarima 21-23, 112 Reykjavík.
  • Dreifing: Varan var einungis seld í verslun Filipino Store ehf., Langarima 21-23, og í vefverslun (www.filipino.is).

Leiðbeiningar til neytenda: Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í verslun Filipino Store ehf. gegn endurgreiðslu.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?