Fara í efni

Innlausn á greiðslumarki mjólkur 1. september 2018

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á þriðja innlausnardegi ársins 2018 fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. september  var greiðslumark 1 bús  innleyst og 122  handhafar lögðu inn kauptilboð. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 122 krónur á lítra á árinu 2018 og annast Matvælastofnun innlausn greiðslumarks. Innlausn greiðslumarks mjólkur fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert.

Samkvæmt búvörusamningum, sem tóku gildi þann 1. janúar 2017, skulu framleiðendur sem teljast nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun hefur innleyst. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna skv. 10. gr. reglugerðar nr. 1181/2017 um stuðning við nautgriparækt og skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem óskað var eftir af framleiðendum í þeim hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

Á innlausnardeginum 1.september   innleysti Matvælastofnun, fyrir hönd ríksins, greiðslumark 1  framleiðenda samtals 179.965 lítra að upphæð 21.955.730 krónur. Matvælastofnun úthlutaði 44.992 lítrum úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 44.992 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og loks 89.981 lítrum úr almennum potti. Tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 122  framleiðendum og var alls óskað eftir 148.497.110 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 56 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 20 framleiðendur. 

Getum við bætt efni síðunnar?