Fara í efni

Innlausn á greiðslumarki mjólkur 1. mars 2019

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á fyrsta innlausnardegi ársins 2019 fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. mars var greiðslumark 2 búa innleyst og 99 framleiðendur lögðu inn kauptilboð. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 100 krónur á lítra á árinu 2019 og annast Matvælastofnun innlausn greiðslumarks. Innlausn greiðslumarks mjólkur fer fram 1. mars, 1. maí og 1. nóvember ár hvert.

Samkvæmt búvörusamningum, sem tóku gildi þann 1. janúar 2017, skulu framleiðendur sem teljast nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun hefur innleyst. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna skv. 10. gr. reglugerðar nr. 1261/2018 um stuðning við nautgriparækt og skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem óskað var eftir af framleiðendum í þeim hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

Á innlausnardeginum 1.mars   innleysti Matvælastofnun, fyrir hönd ríksins, greiðslumark 2 framleiðenda samtals 60.140 lítra að upphæð 6.014.000 krónur. Matvælastofnun úthlutaði 15.035 lítrum úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 15.035 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og loks 30.070 lítrum úr almennum potti. Tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 99 framleiðendum og var alls óskað eftir 9.471.498 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 44 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 20 framleiðendur.

Frétt uppfærð 01.04.19 kl. 11:48


Getum við bætt efni síðunnar?