Héraðsdýralæknir Austur-Skaftafellssýslu - Afleysing
Frétt -
11.12.2009
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun
óskar eftir að ráða dýralækni í fullt starf héraðsdýralæknis í
Austur-Skaftafellssýslu frá og með 1. apríl 2010 í 12 mánuði vegna
fæðingarorlofs.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í dýralækningum
- Reynsla af opinberum eftirlitsstörfum á sviði dýraheilbrigðis æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulags- og samskiptahæfileikar
- Góð tölvukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Jóh. Hannesson
hjá Matvælastofnun, í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og
öðrum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800
Selfoss, merktum Austur-Skaftafellssýsla eða með tölvupósti á mast@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. desember 2009. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.