Fara í efni

Glerbrot í villisveppasúpu

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Villisveppasúpu frá Sælkerabúðinni vegna þess að glerbrot fannst í vörunni. Sælkerabúðin hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Sælkerabúðin
  • Vöruheiti: Villisveppasúpa
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 14.03.2024
  • Nettómagn: 1 lítri
  • Framleiðandi: Sælkerabúðin, Bitruháls 2, 110 Reykjavik.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Dreifing: Sælkerabúðin, Bitruhálsi 2, 110 Reykjavík.

Viðskiptavinum Sælkerabúðarinnar sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að neyta hennar og er bent á að þeir geta skilað henni í Sælkerabúðina á Bitruhálsi gegn fullri endurgreiðslu. Sælkerabúðin biður viðskiptavini sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa
innilegrar afsökunar. Nánari upplýsingar veitir Sælkerabúðin í síma 578-2255 eða í gegnum netfangið info[at]saelkerabudin.is

    

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?