Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Stolt Sea Farm Iceland hf. til fiskeldis í Reykjanesbæ

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Stolt Sea Farm Iceland hf. til fiskeldis í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 13. maí 2022 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 10. júní 2022.

Stolt Sea Farm Iceland sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 2.000 tonna lífmassa á seiða- og matfiskeldi á senegalflúru og gullinrafa að Vitabraut 7 í Reykjanesbæ. Umsókn um endurnýjun rekstrarleyfi var móttekin þann 12. janúar 2022. Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Stolt Sea Farm Iceland FE-1194 að Vitabraut 7 í Reykjanesbæ en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?