Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Benchmark Genetics Iceland hf. til fiskeldis að Vogavík, Vogum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Benchmark Genetics Iceland hf. að Vogavík í Vogum í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 1. júní 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 1. júlí 2021.

Benchmark Genetics Iceland hf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 200 tonna hámarkslífmassa til fiskeldis að Vogavík í Vogum. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 31. maí 2021. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Benchmark Genetics Iceland hf að Vogavík í Vogum FE-1075 en starfsemin er með gilt starfsleyfi frá Umhverfisstofnun.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?