Fara í efni

Breytingarreglugerð um greiðslumark mjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli á breytingarreglugerð nr. 624/2018 við reglugerð nr. 1181/2017 um stuðning við nautgriparækt sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf út þann 15. júní sl. Með breytingarreglugerðinni er tekið fyrir tilfærslu greiðslumarks mjólkur milli lögbýla í eigu sama aðila frá og með 15. júni 2018.

Reglugerðin hljóðar svo:

a-liður 2. mgr. 9. gr. verður svohljóðandi: Þegar um er að ræða tilfærslu greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila. Tilfærsla greiðslumarks er þó aðeins heimil ef handhafi getur sýnt fram á með þinglýstu afsali að öll lögbýli sem tilfærsla greiðslumarksins varðar hafi verið skráð í hans eigu fyrir 15. júní 2018.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 81. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.


Getum við bætt efni síðunnar?