Fara í efni

Breyting á reglum um merkingar búfjár

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli á breytingarreglugerð nr. 748/2016 á reglugerð nr. 916/2012 um merkingar búfjár sem tók gildi 19. ágúst sl. 

Í reglugerðinni er gerð breyting á 6. gr. sem fjallar um merkingar nautgripa. Hér eftir er tekin upp skylda að merkja alla kálfa, einnig þá sem slátrað er innan 20 daga, með forprentuðu plötumerki í bæðu eyru. Ekki er lengur leyfilegt að auðkenna þá með númer móður, sem var gefið upp við slátrun. Kálfurinn þarf að vera merktur með viðurkenndu plötumerki áður en hann er fluttur frá búinu í sláturhús.  

Í öðru lagi eru gerðar breytingar á merkingarreglugerðinni til að styrkja framkvæmd á einstaklingsmerkingum búfjár og þá sérstaklega hvað varðar örmerkingu hrossa. Þannig er sett inn ákvæði um að örmerki skulu viðurkennd af Matvælastofnun og að söluaðilar megi aðeins selja örmerki í hross til aðila sem hafa leyfi til örmerkinga hrossa. Þá skulu allir umráðamenn búfjár og söluaðilar viðurkenndra merkja fyrir búfé vera skráðir í MARK, sem er miðlægt tölvukerfi sem heldur utan um merkingar búfjár, en MARK fluttist yfir til Matvælastofnunar um síðustu áramót þegar stjórnsýsluverkefni voru flutt frá Bændasamtökum Íslands. 

Að síðustu bætist við nýtt ákvæði um að í MARK skuli skrá pöntun og sölu einstaklingsmerkja til umráðamanna búfjár og viðurkenndra merkingarmanna og upplýsingar um einstaklingsnúmer keyptra merkja.


Getum við bætt efni síðunnar?