Fara í efni

Brennisteinn og flúor í grasi innan marka

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Niðurstöður rannsókna á grassýnum sem Matvælastofnun tók á bæjum á Austurlandi í lok september, vegna mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni, gefa til kynna að ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af brennisteini og flúori í gróðri í byggð, þótt meðaltal brennisteins, kalsíum, magnesíum og mangans hafi reynst töluvert hærra en í sýnum sem tekin voru sumarið 2013 á sömu bæjum.

Samráðshópur sem skipaður var af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu eftir að eldgos hófst í Holuhrauni, skipulagði sýnatökur af grasi á átta bæjum í Fljótsdal, Fellum, Skriðdal, Breiðdal og Berufirði. Sýnin voru tekin dagana 29. og 30. september. Öll túnin höfðu verið slegin a.m.k. einu sinni um sumarið. Nokkuð hafði rignt dagana fyrir sýnatöku. Starfsmaður Matvælastofnunar tók sýnin en þau voru undirbúin hjá Landbúnaðarháskóla Íslands en efnagreind hjá Nýsköpunarmiðstöð. Niðurstöður mælinganna voru bornar saman við greiningar á sýnum sem tekin voru sumarið 2013 á sömu túnum á fimm af þessum átta bæjum, í tengslum við rannsókn sem Landbúnaðarháskólinn vinnur að.

Flest efnin eru hærri í þeim sýnum sem nú voru tekin en í viðmiðunarsýnunum og fjögur efnanna eru töluvert hærri, það eru brennisteinn, kalsíum, magnesíum og mangan. Það kemur ekki á óvart að brennisteinn skuli vera hærri en hitt kemur meira á óvart. Ýmis steinefni eru oft hærri í grasi sem vex eftir slátt og gæti það skýrt eitthvað af þessum mun. Skýringin gæti einnig verið sú að sýnin voru tekin nokkru seinna en venjulega er slegið og aukningin gæti þá tengst vetrun grasanna og sölnun.  Þótt gosið í Holuhrauni sé hraungos kemur mikið upp af fínum rykögnum sem innihalda ýmis steinefni. Ef til vill eiga þessar rykagnir einhvern þátt í hærri gildum. Flúor í sýnunum er ekki hár en hann skolast fljótt úr ef rignir. Hafi hann hækkað á gostímanum hefur hann náð að hreinsast úr með rigningunni sem kom fyrir sýnatökuna. Gera má ráð fyrir að þessar niðurstöður megi yfirfæra á hagagróður í svipaðri fjarlægð frá eldstöðinni. Fleiri sýnatökur eru fyrirhugaðar þegar vorar. 

Af þessum niðurstöðum má álykta að ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af brennisteini og flúori í gróðri eins og er, og nú styttist í að fé verði tekið á hús og hrossum gefið hey.

Ítarefni

Mynd: Fangorn9 / CC-BY-SA-4.0


Getum við bætt efni síðunnar?