Fara í efni

Ákvörðun um skráningu vegna fiskeldis til Veiðifélags Kjósarhrepps að Brynjudal í Hvalfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Veiðifélag Kjósarhrepps með fiskeldi að Brynjudal í Hvalfirði. Um er að ræða landeldi á laxi í kerjum.

Veiðifélag Kjósarhrepps sótti um skráningu vegna 10.000 seiða og 1 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á lax (Salmo Salar). Umsókn um skráningu var móttekin þann 4. nóvember 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Ítarefni

Staðfesting skráningar Matvælastofnunar til Veiðifélags Kjósarhrepps.

Starfsleyfi Veiðifélags Kjósarhrepps.


Getum við bætt efni síðunnar?