Fara í efni

Ábyrgar smitvarnir í umgengni við dýr

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hvetur alla til að stunda ábyrga hegðun varðandi snertingu við dýr, umhverfi þeirra og afurðir. Almennt hreinlæti og handþvottur eru lykilatriði til að koma í veg fyrir að matvæli og fólk smitist.

Dýr geta borið með sér ýmsar sjúkdómsvaldandi örverur án þess að sýna einkenni sjúkdóms, t.d. eiturmyndandi E. coli (STEC), Salmonella og Campylobacter. Þessar örverur lifa oft í þörmum dýra og eru í öllu umhverfi þeirra. Því ber ætíð að gæta fyllstu varúðar í allri umgengni við dýr og við meðferð matvæla í nálægð við dýr. Þetta á sérstaklega við um viðkvæma einstaklinga, svo sem börn, gamalmenni og fólk með bælt ónæmiskerfi. Örverurnar þurfa að komast niður í meltingarveg um munn til að sýkja fólk. Það er því mikilvægt að þvo sér alltaf um hendur áður en matar er neytt og sjá til þess að börn þvoi sér um hendur eftir snertingu við dýr þar sem þau eru gjörn á að setja fingur oft í munn.

  • Sótthreinsun með handspritti ein og sér er ekki nægjanleg, ætíð skal þvo hendur fyrst.

Um 60% sýkinga í fólki í heiminum eru súnur, en það eru sjúkdómar sem berast milli manna og dýra. Umgengni við dýr getur haft jákvæð áhrif á heilsu og líðan manna en hafa skal í huga að smitefni getur borist á milli manna og dýra.


Getum við bætt efni síðunnar?