Fara í efni

Ábendingar um veika og dauða auðnutittlinga

Óvenju margar ábendingar hafa að undanförnu borist Matvælastofnun um dauða auðnutittlinga, hvaðanæva af landinu frá fólki sem fóðrar smáfugla reglulega. Matvælastofnun mun á næstunni reyna að komast að því hvað veldur þessum dauða.

Auðnutittlingur er lítill finkufugl og er staðfugl á Íslandi. Auðnutittlingur er frææta og byggir tilveru sína á birkifræi og leitar sér ætis í trjám og öðrum gróðri. Kjörlendi auðnutittlinga er birkiskógar og kjarr, auk þess ræktað skóglendi og garðar. Þeir eru algengir á fóðurbrettum þar sem fræ eru gefin og eru sólblómafræ eitt besta fóðrið fyrir auðnutittlinga. (Heimild Fuglavefurinn). Þeir eru þó ekki eins háðir fóðrun og margir aðrir smáfuglar og flytja sig oft á milli svæða eftir veðri og fæðisframboði.

Ábendingarnar sem hafa borist Matvælastofnun snúa oftast að einstaka eða fáum fuglum sem sýna veikindaeinkenni og drepast að því virðist á 2-3 dögum. Ekki hefur verið sýnt fram á fjöldadauða auðnutittlinga en sumir sem fóðra smáfugla upplýsa að auðnutittlingar séu hættir að koma á fóðurstöðvar. Skýring á því getur auðvitað einnig verið að fuglarnir hafi flutt sig á milli svæða, en tilkynningar um veika og dauða fugla eru þó óvanalega margar. Matvælastofnun mun á næstunni fá hræ af fuglum af mismunandi landsvæðum og senda í sýnatökur og krufningu að Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum til að komast nær mögulegum ástæðum þessara veikinda og dauða. Jafnframt verður reynt að komast að hvort sömu ástæður liggja að baki í öllum tilvikum. Samkvæmt upplýsingum dýrafræðinga við Háskóla Íslands hafa álíka tilvik komið upp hér á landi áður á síðustu árum, en þó ekki í þessu umfangi. Ekki hefur áður verið kannað sérstaklega hvað veldur þessum afföllum.

Margir fóðra smáfugla á veturna og talið er mögulegt að fugladauðinn kunni að tengjast sýkingum sem geta komið upp við fóðurstöðvar. Matvælastofnun hvetur því fólk sem fóðrar smáfugla, að gæta fyllsta hreinlætis og dreifa fóðri sem mest á fleiri staði. Það minnkar einnig streitu hjá fuglunum að hafa fóðurstöðvar dreifðar.


Getum við bætt efni síðunnar?