Ný gjaldskrá Matvælastofnunar tekur gildi 1. júlí
Frétt -
27.06.2025
Ný gjaldskrá Matvælastofnunar (nr. 665/2025) kemur til framkvæmda frá og með 1. júlí og eldri gjaldskráin (nr. 590/2024), sem hefur verið í gildi síðan í júní 2024, fellur brott.
Áfram verður innheimt tímagjald fyrir undirbúning, ferðatíma, eftirlit/þjónustuverkefni og frágang. Um er að ræða tvö tímagjöld, almennt gjald og gjald fyrir daglegt eftirlit í sláturhúsum.
Almennt tímagjald verður kr. 13.211.
Tímagjald fyrir heilbrigðisskoðun sláturdýra og tengda þjónustu verður kr. 10.529.
Verið er að uppfæra upplýsingar um nýja gjaldskrá á vef stofnunarinnar.
Nánari upplýsingar má finna í Gjaldskrá fyrir eftirlit og önnur gjaldskyld verkefni Matvælastofnunar, 665/2025.