Fara í efni

Fæðubótarefni

Skilgreining

Matvæli sem eru ætluð sem viðbót við venjulegt fæði og sem eru með hátt hlutfall af vítamínum, steinefnum eða annars konar efnum sem hafa næringar- eða lífeðlisfræðileg áhrif. Þessi efni geta verið ein sér eða blönduð saman, og eru markaðssett í formi skammta, nánar tiltekið sem hylki, brjóstsykur, töflur, pillur og í öðru svipuðu formi, duftpokar, vökvaampúlur, dropaglös og í öðru svipuðu formi vökva og dufts sem er ætlað til inntöku í mældum, smáum skömmtum.

Innflutningur fæðubótarefna til einkaneyslu

Nánari skýring

Fæðubótarefni geta verið mismunandi vörur en allar þær hafa það sameiginlegt að vera viðbót við venjulegt fæði og innihalda hátt hlutfall næringarefna (e. concentrated sources of nutrients) eða annarra efna (e. other substances). Fæðubótarefni sem koma tilbúin í neytendaumbúðum geta innihaldið auk vítamín og steinefni, plöntuhluta (lauf, blóm, rót o.fl.), dýraafurðir (hjarta, lifur) og útdrátt úr jurtum eða öðrum efnum. Þau geta einnig innihaldið næringarefni sem eru efnafræðilega framleitt.

Hugtakið fæðubótarefni nær því yfir lýsi, hefðbundnar vítamín- eða steinefnatöflur, vörur unnar úr plöntuhlutum eins og hvítlauksduft eða túrmerik og útdráttum úr þeim, t.d. kúrkúmín.

Það sem er sameiginlegt með öllum fæðubótarefnum:

  • Þau innihalda aukið magn vítamína, steinefna eða annarra efna sem hafa næringar- eða lífeðlisfræðileg áhrif
  • Þau eru markaðssett í mældum, smáum skömmtum, t.d. í formi töflu, vökva eða dufts
  • Ráðlagður dagsskammtur, eða hversu mikils skal neyta á dag, skal vera tilgreint, t.d. tvær töflur á dag

Próteinduft eða næringarduft -  fæðubótarefni?

Ef um er að ræða næringarduft, sem ætlað er til notkunar í smáum, afmældum skömmtum (t.d. 1-2 matskeiðar á dag, allt að 60 g), gæti slík vara flokkast sem fæðubótarefni jafnvel þó að neytandinn hræri duftið út í glasi af vatni. Það er þó álit Matvælastofnunar að vara, sem inniheldur t.d. eingöngu prótein eða kolvetni, geti ekki flokkast sem fæðubótarefni þar sem slík vara er í raun fæða, og inniheldur ekkert umfram önnur matvæli, þ.e. er engin viðbót við fæðu. Slík vara myndi falla undir lög og reglur sem almennt gilda um matvæli. Þar að auki má nefna að ef vara inniheldur verulegt magn af orku þá getur slík vara ekki talist sem viðbót við fæðu, heldur er hún fæða.

Orkuskot með vítamínum og/eða koffíni er fæðubótarefni

Á markaði eru fáanlegar vörur í einskonar sopa formi (orkuskot, e. energy shot, vitamin shot). Þar er um að ræða litlar flöskur með vökva oft c.a. 60 ml, sem innihalda hátt hlutfall vítamína, steinefna eða annarra efna, oft koffíns. Slíkar drykkjarvörur flokkast sem fæðubótarefni.

Drykkjavörur með vítamínum og/eða steinefnum – fæðubótarefni?

Tilbúnir drykkir sem eru seldir á stórum flöskum geta ekki flokkast sem smáir, afmældir skammtar og þess vegna geta hvorki próteindrykkir né orkudrykkir flokkast sem fæðubótarefni.

Próteinstykki og orkustykki falla undir aðra reglugerð

Vara sem inniheldur íblönduð vítamín, steinefni eða önnur efni með lífeðlisfræðilega virkni, fellur ekki undir skilgreininguna fæðubótarefni (sbr. skilgreiningu 2. gr. og skýringar hér að ofan). Þær vörur eru skilgreindar sem „matvæli með íblönduðum bætiefnum“, t.d. próteinstykki eða orkustykki. Umfjöllun um íblöndun má sjá hér: https://www.mast.is/is/matvaelafyrirtaeki/efni-i-matvaelum/iblondun.

Uppfært 21.02.2024
Getum við bætt efni síðunnar?