Fara í efni

Útivist

Um útivist nautgripa gilda reglur sem fram koma í reglugerð um velferð nautgripa nr. 1065/2014. Með breytingareglugerð nr. 379/2022 voru kröfur um útivist nautgripa auknar. Skv. reglugerðinni gildir að:

Allir nautgripir skulu komast á beit á grónu landi í átta vikur hið minnsta á tímabilinu frá 15. maí til 15. október ár hvert. Undanskildir eru kálfar fæddir á viðkomandi ári svo og graðnaut. Aðgangur að útigerði uppfyllir ekki kröfur um útivist á grónu landi.

Þetta þýðir að allar mjólkurkýr og kvígur þurfa að komast á beit á grónu landi daglega í a.m.k. 8 vikur á tímabilinu frá miðjum maí fram í miðjan október. Er þessi krafa tilkomin út frá bæði velferðarsjónarmiðum, til þess að þær hafi möguleika á að sinna sínu eðlilega atferli við að bíta gras, og heilsufarssjónarmiðum þar sem nautgripir, eins og menn, taka D-vítamín upp í gegnum húðina í sólskini.

Einu nautgripirnir sem eru undanskildir þessari reglu um lágmarks 8 vikna útivist eru graðnaut og ungir kálfar sem fæddir eru á árinu.

Athygli skal vakin á því að ef grunur vaknar um að krafa um lögbundna útivist nautgripa sé ekki uppfyllt er það bóndans að sanna að svo sé, t.d útivistardagbók.

Eftirlitið fer fram á tvennan hátt, þ.e. að ábendingum sem berast stofnuninni er fylgt vel eftir og einnig eru eftirlitsmenn Matvælastofnunar með virkt eftirlit á ferðum sínum um héruð landsins.

Síðasta tækifæri til þess að setja gripi út og ná 8 vikna útivist eins og reglugerðin gerir ráð fyrir er 15. ágúst.

Athygli er vakin á því að ef reglugerðarákvæði um útivist eru brotin getur Matvælastofnun beitt dagsektum til að þvinga fram úrbætur. Ef það dugar ekki til hefur stofnunin heimild til þess að leggja á stjórnvaldssekt sem getur numið umtalsverðri upphæð.

Uppfært 19.06.2023
Getum við bætt efni síðunnar?