Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis Laxós ehf. á Árskógssandi í Eyjafirði

Matvælastofnun hefur veitt Laxós ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á Árskógssandi í Eyjafirði. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 400 tonna hámarkslífmassa vegna seiðaeldis á laxi og regnbogasilungi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 7. mars 2024 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 5. apríl 2024.

Laxós ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 400 tonna hámarkslífmassa seiðaeldi á laxi og regnbogasilungi á Árskógssandi í Eyjafirði. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 26. apríl 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni

Rekstrarleyfi Laxós ehf.

Fyrri tilkynning Laxós ehf. til Skipulagsstofnunar

Seinni tilkynning Laxós ehf. til Skipulagsstofnunar

Fyrri ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu

Seinni ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu

Greinargerð Matvælastofnunar


Getum við bætt efni síðunnar?