Fara í efni

Innlausn á greiðslumarki mjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á fyrsta innlausnardegi þann 1. mars 2017 fyrir greiðslumark mjólkur, í samræmi við búvörusamninga sem tóku gildi um síðustu áramót, óskuðu 15 greiðslumarkshafar eftir að ríkið innleysti greiðslumark sitt. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 138 krónur á lítra á árinu 2017. Matvælastofnun annast innlausn greiðslumarks.

Samkvæmt nýjum búvörusamningum skulu framleiðendur sem teljast nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun hefur innleyst. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna skv. 10. gr. reglugerðar nr. 1150/2016 um stuðning við nautgriparækt og skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem óskað var eftir af framleiðendum í þeim hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

Innlausn greiðslumarks fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert. Á innlausnardeginum 1. mars óskuðu 15 mjólkurframleiðendur eftir að innleysa greiðslumark, samtals 1.061.298 lítra að upphæð 146.459.124 krónur. 265.324 lítrum var úthlutað úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 265.325 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og 530.649 lítrum úr almennum potti. Gild tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 35 framleiðendum og var alls óskað eftir 2.386.000 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 23 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 6 framleiðendur. Við afgreiðslu tilboða lækkaði tilboðsmagn um 305.000 lítra þar sem tveir framleiðendur drógu kauptilboð til baka og einn framleiðandi uppfyllti ekki öll skilyrði fyrir kaupum. 


Getum við bætt efni síðunnar?