Fræðslufundur: Eftirlit með lyfjanotkun og lyfjaleifum í dýrum
Matvælastofnun heldur fræðslufund um eftirlit með lyfjanotkun og lyfjaleifum í dýrum fimmtudaginn 26. apríl kl.15:00 - 16:00. Á fundinum verða kynntar nýjar reglur um rafræna skráningu dýralækna á dýralyfjum. Nýja rafræna skráningarkerfið HEILSA verður jafnframt kynnt þar sem dýralæknum ber að skrá notkun og ávísun lyfseðilsskyldra lyfja í dýr. Skráningarkerfið hefur þegar tekið gildi fyrir nautgripi og hross og munu aðrar dýrategundir fylgja í kjölfarið. Tilgangur skráningarinnar er að stuðla að aukinni dýravelferð og neytendavernd með því að auðvelda yfirvöldum að hafa eftirlit með lyfjanotkun í dýrum og lyfjaleifum í búfjárafurðum.
Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST undir Útgáfa - Fræðslufundir.
Fyrirlesarar:
Auður L. Arnþórsdóttir, sóttvarnadýralæknir hjá Matvælastofnun
Björn Steinbjörnsson, dýralæknir lyfjamála hjá Matvælastofnun
Kjartan Hreinsson, dýralæknir heilbrigðiseftirlits hjá Matvælastofnun
Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!
Ítarefni