Fara í efni

Dýraeftirlitsmaður á sviði velferðar og aðbúnaðar dýra óskast í Norðvesturumdæmi

Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsmann með velferð og aðbúnaði dýra í Norðvestur­umdæmi með aðsetur á Sauðárkróki eða vestar í umdæminu. Um 100% starf er að ræða en starfshlutfall getur þó verið sveigjanlegt sé þess óskað. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.

Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Helstu verkefni og ábyrgð

Dýraeftirlitsmaður sinnir fyrst og fremst eftirliti með dýrahaldi, móttöku og úrvinnslu tilkynninga um illa meðferð dýra, eftirliti með skráningum í gagnagrunna um dýrahald, ásamt öðrum eftirlitsverkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í búvísindum, eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi eða búfræðimenntun.
  • Reynsla af búfjárhaldi og umgengni við búfé af öllum tegundum æskileg
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
  • Reynsla af opinberu eftirliti æskileg
  • Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku skilyrði

Frekari upplýsingar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Daníel Haraldsson, héraðsdýralæknir, á netfanginu daniel.haraldsson@mast.is eða í síma 530 4800. Sótt er um starfið á Starfatorgi.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.  


Getum við bætt efni síðunnar?