Fara í efni

Vöktun smitferja sumarið 2026 – mikilvægi tilkynninga og sýnasöfnunar

Vöktun smitferja

Í sumar stendur yfir áframhaldandi vöktun á mögulegum smitferjum (e. vectors) hér á landi, svo sem moskítóflugum, mítlum og lúsmýi. Í ljósi þess að moskítóflugur fundust hér á landi í fyrsta sinn síðastliðið haust er mikilvægt að fylgjast náið með þróun mála og meta hvort þeirra verði vart á ný og þá í hvaða mæli.

Matvælastofnun fylgist með stöðunni í samvinnu við Náttúrufræðistofnun og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Markmiðið er að efla yfirsýn yfir útbreiðslu tegunda og meta hvort þær geti borið smitsjúkdóma sem skipta máli fyrir dýr og menn.

Moskítóflugur

Almenningur er hvattur til að tilkynna ef grunur vaknar um moskítóflugur.

Hvert skal tilkynna: tilkynningar um moskítóflugur skulu sendar á Náttúrufræðistofnun (natt@natt.is). Mikilvægt er að láta staðsetningu fylgja með, sem og ljósmyndir ef kostur er.

 

Mítlar

Almenningur og dýralæknar eru hvattir til að safna mítlum sem finnast á fólki eða dýrum.

Hvar má skila sýnum: Náttúrufræðistofnun eða Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

Upplýsingar sem mikilvægt er að fylgi mítlasýnum:

  • Dagsetning fundar
  • Fundarstaður
  • Hýsill (dýr/maður)
  • Hvar hýsill hefur haldið sig síðustu daga

Vinsamlegast athugið að sýnum er safnað til rannsókna og vöktunar. Ekki er unnið úr hverju sýni strax og ekki er veitt einstaklingsbundin niðurstaða í öllum tilvikum.

Nánari upplýsingar um tilkynningar og sýnasöfnun má nálgast hjá Matvælastofnun.


Getum við bætt efni síðunnar?