Fara í efni

Viðvörun vegna kraftaverkalausnarinnar MMS

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

  Eitrunarmiðstöð Landspítalans hefur vakið athygli á því að hægt er að kaupa á netinu svokallaða „kraftaverkalausn“ MMS (Miracle Mineral Solution) sem valdið getur alvarlegum veikindum og jafnvel dauða. Þessi lausn er einnig kölluð kraftaverkaefni (Miracle Mineral Supplement). Í þessari lausn er 28% natríum klórít (NaClO2) sem  er ætlað að lækna marga sjúkdóma allt frá alnæmi til berkla. Engin vísindaleg gögn liggja fyrir sem styðja notkun þessarar lausnar við sjúkdómum. Natríum klórít er eitur sem valdið getur  metrauðablæði (methemoglobulinemia), skemmdum á rauðum blóðkornum og nýrnabilun.

Eindregið er varað við notkun þessarar kraftaverkalausnar. Mikilvægt er að tilfelli þar sem grunur leikur á eitrun af völdum MMS séu tilkynnt til yfirvalda.


    Sóttvarnalæknir
    Lyfjastofnun
    Matvælastofnun
    Umhverfisstofnun
    Eitrunarmiðstöð Landspítalans


Getum við bætt efni síðunnar?