Fara í efni

Vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Dagana 18.-24. nóvember 2020 er alþjóðleg vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja. Markmið þessarar viku er að auka skilning og meðvitund um sýklalyfjaónæmi og hvetja til þess að sýklalyf séu notuð skynsamlega á öllum sviðum, hvort sem er hjá mönnum eða dýrum. Sýklalyfjaónæmi er ógn sem steðjar að allri heimsbyggðinni og til að berjast gegn þessari vá þarf að taka höndum saman úr öllum áttum - hjá mönnum, dýrum, matvælum og umhverfi. Við höfum öll hlutverki að gegna í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi.  

Sýklalyf eru notuð til að meðhöndla sýkingar af völdum baktería í mönnum og dýrum. Ef sýklalyf missa virkni sína þá getur reynst erfitt að meðhöndla sýkingar í mönnum og dýrum, auk þess geta sýklalyfjaónæmar bakteríur síðan borist á milli manna, dýra og umhverfis, með beinum eða óbeinum hætti. Röng og óhófleg notkun á sýklalyfjum getur leitt til þess að bakteríur myndi ónæmi gegn þeim sýklalyfjum sem virkuðu áður á þær. Óhófleg notkun getur stafað af of mikilli ávísun sýklalyfja meðal lækna og dýralækna og aðgengi almennings að sýklalyfjum án lyfseðils, svo dæmi séu nefnd. Notkun sýklalyfja til meðhöndlunar á veirusýkingum og notkun sýklalyfja sem vaxtarhvetjandi efni fyrir búfé eru dæmi um ranga notkun sýklalyfja. Sýklalyfjanotkun í dýr er með lægsta móti hérlendis í samanburði við önnur Evrópulönd, eins og nýútgefin skýrsla Lyfjastofnunar Evrópu sýnir, en þrátt fyrir það er svigrúm til þess að gera enn betur. Nýmæli í ár er í útgáfu skýrslunnar þar sem tekin er saman þróun á sölu sýklalyfja fyrir hvert og eitt land fyrir árin 2010-2018. Fyrir Ísland má sjá að heildarsala sýklalyfja fyrir dýr hérlendis hefur dregist saman um 20% á þessum árum.  Stærstur hluti sölunnar er þröngvirk, beta-laktamasanæmum pencillin sem er jákvætt, þar sem notkun þröngvirkra sýklalyfja takmarkar myndun á sýklalyfjaónæmi.  

Að vikunni standa Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunin (OIE), Alþjóðaheilbrigðistofnunin (WHO) og Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO) enda skiptir máli að sýklalyf séu notuð skynsamlega á öllum þessum sviðum. Að auki heldur OIE úti vefsíðu sem fjallar um skynsamlega notkun sýklalyfja í dýr. Þar er hægt að finna ábendingar um hvað dýraeigendur, dýralæknar, yfirvöld, lyfjaframleiðendur, fóðurframleiðendur og heildsalar geta gert til að stuðla að skynsamlegri notkun sýklalyfja. Þar er einnig að finna próf sem dýraheilbrigðisstarfsmenn og dýraeigendur geta spreytt sig á til að kanna þekkingu sína á sýklalyfjum.

Á eftirfarandi veggspjöldum eru dregnar fram upplýsingar um sýklalyfjaónæmi og hvað bændur og dýraeigendur geta gert í baráttunni við sýklalyfjaónæmi. Smelltu á veggspjöldin til að kynna þér málið:

Veggspjald um sýklalyfjaónæmi           Veggspjald um sýklalyfjaónæmi

 

Ítarefni 


Getum við bætt efni síðunnar?