Fara í efni

Móðir Jörð hlaut viðurkenningu fyrir lífræna framleiðslu

Hjónin Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir hlutu viðurkenningu atvinnuvegaráðherra fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni framleiðslu. Viðurkenningin var afhent á lífræna deginum 19. september sl. Sjá frétt á vef Atvinnuvegaráðuneytis Stjórnarráðið | Móðir jörð hlaut viðurkenningu fyrir lífræna framleiðslu

Eygló og Eymundur eru eigendur fyrirtækisins Móðir jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði sem um árabil hefur verið brautryðjandi í lífrænni ræktun og matvælaframleiðslu á Íslandi. Lífræn ræktun í Vallanesi hófst formlega árið 1995 þegar býlið fékk lífræna vottun en ræktun með þeim aðferðum á sér lengri sögu á bænum.

Í Vallanesi er nú stunduð lífræn ræktun á korni og fjölbreyttu grænmeti, auk fullvinnslu matvæla úr hráefni sem að stórum hluta er ræktað á staðnum. Þar hefur einnig verið lögð áhersla á skógrækt og skjólbelti.
Sérstök áhersla hefur jafnframt verið lögð á að auka notkun íslensks byggs til manneldis og þróa rétti og vörur þar sem þetta næringarríka heilkorn fær að njóta sín.

Árangur Eyglóar og Eymundar verður ekki aðeins mældur í uppbyggingunni í Vallanesi. Þau hafa rutt brautina í lífrænni ræktun, nýtingu staðbundinna auðlinda og fullvinnslu eigin hráefnis og þannig haft áhrif langt út fyrir eigin starfsemi.
Þau hafa jafnframt miðlað þekkingu á lífrænni framleiðslu og stuðlað að auknum skilningi á möguleikum hennar hér á landi.

Atvinnuvegaráðuneytið óskaði eftir tilnefningum til verðlaunanna og komu til greina einstaklingar, fyrirtæki og félög sem þykja hafa skarað fram úr á sviði framleiðslu, nýsköpunar, vöruþróunar, markaðssetningar, sölu eða kynningar á lífrænum vörum. Afhending viðurkenningarinnar er hluti af aðgerðaáætlun til eflingar lífrænni framleiðslu.

Eymundur tók við viðurkenningunni fyrir hönd þeirra Eyglóar frá Bjarka Pjeturssyni, sérfræðingi á skrifstofu landgæða og dýraheilsu í atvinnuvegaráðuneytinu. 

Allir sem rækta, framleiða, geyma, dreifa, selja eða flytja, lífrænt vottuð matvæli eða fóður, inn eða út úr landinu skulu hafa vottun frá faggildri vottunarstofu. 

Nánar um lífræna framleiðslu


Getum við bætt efni síðunnar?