Fara í efni

Viðbúnaðarstig vegna fuglainflúensu lækkað

Fáar tilkynningar um dauða villta fugla hafa borist Matvælastofnun undanfarna tvo mánuði og engir fuglar né spendýr greinst með skæða fuglainflúensu síðan um miðjan mars.

Í ljósi þess að nú eru flestir farfuglar komnir til landsins og ekkert sem bendir til þess að fuglainflúensuveirur hafi borist með þeim telur áhættumatshópur um fuglainflúensu óhætt að færa viðbúnað af hættustigi niður á óvissustig.

Matvælastofnun hefur því lagt til við ráðherra að afnema þær varnaraðgerðir sem fyrirskipaðar voru með auglýsingu í Stjórnartíðindum í desember 2024.

Fuglaeigendur eru þó hvattir til að vera ávallt vel á verði gagnvart sjúkdómseinkennum og tilkynna Matvælastofnun um óeðlileg veikindi eða dauða. Jafnframt að gæta hreinlætis og sóttvarna í umhverfi fuglanna til að verja þá sem best fyrir mögulegu smiti frá villtum fuglum.

Almenningur er beðinn um að vera áfram vakandi fyrir veikindum eða óeðlilegum dauða villtra fugla og tilkynna um slíkt til Matvælastofnunar með því að skrá ábendingu á heimasíðu stofnunarinnar. Æskilegt er að tilkynningunni fylgi myndir og nákvæm lýsing og hnit fundarstaðar.


Getum við bætt efni síðunnar?