Fara í efni

Viðbúnaður vegna fuglaflensu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Eins og alltaf á þessum árstíma metur Matvælastofnun í samvinnu við sérfræðinga á Tilraunastöðinni á Keldum og í Háskóla Íslands, hvort hætta sé á að farfuglarnir okkar beri með sér fuglaflensusmit til landsins. Því miður er staðan sú í Evrópu um þessar mundir að töluvert hefur verið um fuglaflensu, bæði í alifuglum og villtum fuglum. Það er því mikilvægt að fuglaeigendur gæti smitvarna og allir séu vakandi fyrir óeðlilegum dauða bæði villtra fugla og fugla í haldi.

Á undanförnum mánuðum hafa tilkynningar borist um fuglaflensugreiningar bæði í alifuglum og villtum fuglum í löndum þar sem margir af íslensku farfuglunum hafa vetursetu, svo sem í Hollandi, Englandi og Írlandi. Ekki er þó talin þörf á að auka viðbúnað enn sem komið er en Matvælastofnun vill samt sem áður brýna fyrir fuglaeigendum að huga að smitvörnum og þá sér í lagi að koma í veg fyrir að villtir fuglar komist í fóður og drykkjarvatn alifugla.

Að svo stöddu er því lágmarks viðbúnaðarstig í gildi. Það felur m.a. í sér að tilkynna skuli til Matvælastofnunar um dauða villta fugla ef orsök dauða er ekki augljós. Það má gera með því að senda ábendingu á vef stofnunarinnar eða með tölvupósti á netfangið mast@mast.is. Jafnframt skulu fuglaeigendur hafa samband við stofnunina verði þeir varir við aukin dauðsföll eða grunsamleg veikindi meðal fugla sinna.

Hér að neðan eru upplýsingar um það viðbúnaðarstig sem í gildi er, ásamt tengli á ítarlegri umfjöllun um fuglaflensu og viðbúnað.

Viðbúnaðarstig 1

Lítil hætta

Þetta viðbúnaðarstig er alltaf í gildi.

Tilkynningar

  1. Tilkynna skal til Matvælastofnunar um dauða villta fugla, þegar orsök dauða er ekki augljós, svo sem flug á rafmagnslínur, á rúður eða fyrir bíla.
  2. Aukin dauðsföll eða grunsamleg veikindi í alifuglum og öðrum fuglum í haldi skal tilkynna til Matvælastofnunar.
       Leiðbeinandi viðmið:
        - Minnkun á fóðurnotkun og vatnsnotkun um meira en 20%.
        - Minnkun á varpi um meira en 5% á tveimur dögum.
        - Afföll meiri en 3% á einni viku.
        - Sjúkdómseinkenni, s.s. bólginn haus, öndunarerfiðleikar, niðurgangur og blæðingar í húð á fótum, sjá nánar hér.

Lágmarks smitvarnir fyrir alifugla og aðra fugla í haldi

  1. Forðast skal að hafa nokkuð í umhverfi fuglahúsa sem laðar að villta fugla.
  2. Fóður og drykkjarvatn skal ekki aðgengilegt villtum fuglum.
  3. Fuglahúsum skal vel við haldið.
  4. Almennar góðar smitvarnir skulu viðhafðar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?