Fara í efni

Viðbótargreiðsla til sauðfjárbænda v. svæðisbundins stuðnings

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Sauðfjárbændur sem voru rétthafar svæðisbundins stuðnings árið 2017 fengu í dag greidda viðbótargreiðslu vegna svæðisbundins stuðnings í samræmi við ákvörðun stjórnvalda um stuðning við sauðfjárbændur.

Um er að ræða annan hluta aðgerða stjórnvalda af tveimur í samræmi við bráðabirgðaákvæði reglugerðar nr. 1183/2017 um stuðning við sauðfjárrækt.

Til þessa verkefnisins er varið 150 milljónum króna samkvæmt fjáraukalögum 2017.

Greiðsla til hvers sauðfjárbús sem uppfyllir skilyrði fyrir greiðslu svæðisbundins stuðnings er 402.684 kr. og til bænda í Árneshreppi, Strandasýslu, er 503.355 kr. (25% álag).

Alls nutu 371 sauðfjárbú þessa stuðnings.

Matvælastofnun stefnir að því í næstu viku að greiða síðari hluta þessa stuðnings stjórnvalda að upphæð 400 milljónir kr. sem snýr að greiðslu fyrir innlagt dilkakjöt á framleiðsluárinu 2017 til að draga úr kjaraskerðingu sauðfjárbænda.


Getum við bætt efni síðunnar?