Fara í efni

Veiruskita – uppfært fræðsluefni

Veiruskita er veirusjúkdómur í nautgripum sem smitast auðveldlega milli búa með m.a. fólki og tækjum. Helstu einkenni er niðurgangur, nefrennsli og lækkuð nyt í mjólkurkúm.

Vakin er athygli á því að veiruskita í nautgripum er tilkynningaskyldur sjúkdómur. Nú fer í hönd sá árstími þar sem algengast er að vart verði við veiruskitu í nautgripum. Fræðsluefni á heimasíðu Matvælastofnunar hefur verið uppfært og ráðleggjum við bændum og dýralæknum að kynna sér það sem þar stendur varðandi smitvarnir: https://www.mast.is/is/baendur/nautgriparaekt/smitsjukdomar-i-nautgripum#veiruskita.

Þegar vart verður við veiruskitu ber að tilkynna það til Matvælastofnunar, annað hvort með tölvupósti á mast@mast.is eða með því að senda inn ábendingu í gegnum heimasíðu stofnunarinnar.


Getum við bætt efni síðunnar?